Ágústa Guðrún Ólafsdóttir útskrifaðist af upplýsinga og fjölmiðlabraut með sérgrein í ljósmyndun frá Tækniskólanum í Reykjavík vorið 2014. Ágústa hefur tekið þátt í nokkrum ljósmynda samsýningum m.a. tveimur styrktarsýningum í Ráðhúsi Reykjavíkur, Kringlunni og með félögum úr Ljósop á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Ágústa lærði listmálun í Vogaakademíunni hjá Eyþóri Stéfánssyni listakennara frá árunum 2007-2010 og hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum með Vogaakademíunni. Ágústa Guðrún er gift á fjögur börn, fimm barnabörn og er búsett í Reykjanesbæ.
Myndir eru eins og dagbók fyrir Ágústu og vill hún segja sögur af liðnum atburðum og varðveita minningar. Hún hefur gaman af því að kynnast fólki og er vön að umgangast börn.
Ef þið eruð með fyrirspurnir vinsamlegast sendið tölvupóst: agustago@simnet.is Einnig er hægt að setja inn skilaboð undir flipanum: Hafið samband.