Hér fyrir neðan er lokaverkefnið mitt í ljósmyndun vorið 2014. Verkið kalla ég "Tilfinningar" Þetta eru fyrst og fremst mín hughrif af lífsreynslu sem ég lenti í á ákveðnu tímabili í lífi mínu. Myndirnar eiga að túlka mína vegferð í gegnum veikindi sem ég varð fyrir. Svörtu bakgrunnarnir tákna dökku tímabilin, ljósgráu bakgrunnarnir er farið að birta til og að lokum hvítir bakgrunnar þegar ég fæ bata. Litir á kjólum skipta einnig máli við túlkunina. Stúlkur úr Listdansskóla Íslands túlka tilfinningarnar fyrir mig. Hár og förðun Hanna Lára Ólafsdóttir freelance hárgreiðslumeistari og make up artist.
Fyrir nokkrum árum þurfti ég að fara í smá aðgerð á öxl og lamaðist í hægri handlegg á eftir. Ég þurfti að læra allt aftur upp á nýtt með vinstri hönd því er rétthent. Ég þurfti á daglegri sjúkraþjálfun að halda og þurfti að fá aðstoð með allt sem ég gerði. Þetta var erfitt tímabil og upp kom sorg, reiði og óvissa um hvað tæki við. Ég hélt samt áfram bjartsýn á framtíðina ákveðin að ná til baka fyrri mætti. Sjúkraþjálfum og fjölskyldu minni þakka ég góðan árangur og hjálpsemi að koma mér af stað aftur. Sem liður því markmiði að þjálfa mig fór ég að læra að mála og notaði hægri höndina til þess, þó svo að ég gæti varla haldið á penslinum. Kennaranum mínum honum Eyþóri Stefánssyni listmálara á ég mikið að þakka, hann kom mér af stað, útbjó borð fyrir mig þar sem ég sat og hvíldi höndina á. Liður í hans kennslu var að fara út með okkur að taka ljósmyndir af því sem við áttum að mála. Ég komst að því að ég gat málað og þarna kviknaði áhugin á ljósmyndun á ný. Ég hafði brennandi áhuga á ljósmyndun sem hafði blundað í mér frá því að ég var í barnaskóla. Sagan mín er því nokkurskonar dæmisaga um það góða sem getur komið úr mjög slæmum aðstæðum. Mín lömun varð til þess að ég fann það út að ég hafði auga fyrir því að mála og taka ljósmyndir sem varð til þess að ég hóf nám í upplýsinga og fjölmiðlafræði. Það var líka erfitt fyrir mig að setjast aftur á skólabekk út af aldri. Ég hef komist að því líka að það er aldrei of seint að láta drauma sína rætast sama hver aldurinn er og að láta ekkert stoppa sig þó að hindranir séu í veginum.